Stefnumótun í fiskeldi
Hér er um að ræða úttekt á vinnu og tillögum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Um er að ræða tímabilið desember 2016 til ágúst 2017 en til að geta metið stöðu einstakra málaflokka í tillögum stefnumótunarhópsins er horft lengra fram í tímann allt til þessa árs. Skýrslan er hluti þeirra vinnu að kortleggja vinnubrögð sem viðgengust við undirbúning og gerð laga um fiskeldi til að fá betri heildarmynd sem verður dregin saman í bókinni Lög um fiskeldi – ,,Þetta hefur eftirmála“ og einnig stuðst við skrifum á greinum í fjölmiðlum á næsta ári. Jafnframt er vonast til að þessi rannsóknarskýrsla nýtist Ríkisendurskoðun við úttekt á stjórnsýslu fiskeldis og Matvælaráðuneytinu við stefnumótun í fiskeldi eða hvað ber að varast í þeirri vinnu. Starfshópi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi var gefinn kostur á að gera athugasemdir við skýrsluna sem þau nýttu sér ekki. Í minni vinnu er áhersla lögð á að vinna faglega og er það miður ef staðreyndarvillur er að finna í skýrslunni.