Í viðhengi fylgir umsögn Sjávarútvegsþjónustunnar við frumvarpsdrög til laga um lagareldi. Umsögnin fjallar sérstaklega um III. kafla frumvarpsins – Umhverfisvernd og rannsóknir.
III. kafli. Umhverfisvernd og rannsóknir
Sjávarútvegsþjónustan leggur til eftirfarandi breytingar:
- Áhættumat erfðablöndunar verði lagt niður sem stjórntæki.
- Stjórnun hámarkslífmassa byggist á burðarþolsmati.
- Heimilaður hámarkslífmassi til eldis á frjóum laxi verði ákveðinn af Alþingi hverju sinni.
- Alþingi ákveði í hvaða fjörðum heimilt verði að stunda sjókvíaeldi á frjóum laxi.
- Eldi í lokuðum sjókvíum verði eingöngu heimilt á hefðbundnum sjókvíaeldissvæðum.