Lög um fiskeldi – Beiðni um opinbera rannsókn

Beiðni um opinbera rannsókn

Í fyrri pósti hér að neðan kemur fram að þann 20. maí 2019 hafi undirritaður sent tölvupóst til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og allir alþingismenn fengu afrit. Þar var óskað eftir að gerð væri opinbera rannsókn vegna alvarlegra annmarka á vinnubrögðum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi.  Þessari beiðni var svarað með því að svara engu.  Nokkrum sinnum var beiðnin ítrekuð við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í tölvupóstum og auglýst í fjölmiðlum án árangurs. Nú er farið fram á að forsætisráðherra beiti sér fyrir því að þessi rannsókn verði gerð (fylgiskjal 1). Hér ber sérstaklega að skoða hvernig fulltrúar erlendra fjárfesta í stefnumótunarhópnum gátu hannað leikreglurnar í gegnum opinbera stefnumótun, skjalfest í lögum samþykkt á Alþingi Íslendinga, sjálfum sér og sínum fyrirtækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra.

Read more… →

Áhættumat erfðablöndunar – Hvað næst?

Uppbygging laxeldis í sjókvíum við Íslandi hefur verið leitt af íslenskum fulltrúum erlendra fjárfesta og skilað þeim aðilum miklum fjárhagslegum ávinningi. Leikreglurnar voru mótaðar í skýrslu starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi frá árinu 2017 þar sem áhættumat erfðablöndunar leikur lykilhlutverk við úthlutun þeirrar auðlindar sem fólgin er í leyfum til eldis á laxi í sjókvíum hér við land. Áhættumat erfðablöndunar er úthlutunarkerfi sem gagnast aðallega laxeldisfyrirtækjum í meirihlutaeigu erlendra aðila og hefur lítið sem ekkert með náttúruvernd að gera.  Náttúruvernd áhættumats erfðablöndunar er best lýst með umsögn lögfræðings og formanns stangveiðifélags við fiskeldisfrumvarpið sem endanlega var samþykkt á Alþingi Íslendinga á árinu 2019: ,,Það er raunar með nokkrum ólíkindum að veitt sé lagaheimild fyrir því að erfðablanda megi villtan íslenskan lax“.  

Jafnframt var þess gætt af íslenskum fulltrúum erlendra fjárfesta í stefnumótunarhópnum að ekki væru settar hindranir sem kæmu í veg fyrir að mögulegt væri að fara með laxeldisfyrirtækin á erlendan hlutabréfamarkað og ná þannig mikilli hækkun í hafi á verðmætum eldisleyfa.

PDF skjal af greininni sem birtist í Bændablaðinu

Read more… →

Skýrsla Ríkisendurskoðunar og beiðni sem ekki var svarað

Hér er að finna skýrslu Ríkisendurskoðunar ,,Sjókvíaeldi – Lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit (fylgiskjal 1). Ríkisendurskoðun er þakkað fyrir ágæta skýrslu sem mun nýtast mínu ,,Samfélagsverkefni gegn spillingu“. Það er margt áhugavert í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þau vinnubrögð sem hafa viðgengist á undanförnum árum innan fiskeldis. Þegar vinna Ríkisendurskoðunar hófst bentu lögfræðingar undirrituðum á að stofnunin myndi ekki skoða eða kafa djúpt í spillingarmálin sem hafa einkennt þessa atvinnugrein. Á því verður tekið í mínu samfélagsverkefni.

Read more… →

Fiskeldisfréttir nr. 1 2023

Undirritaður hafði frumkvæði að því að Strandbúnaður ehf. var stofnaður árið 2016 og sá um rekstur hans til ársins 2020.  Það hefur afleiðingar að hafa skoðanir og gagnrýna spillingu. Forsvarsmenn í greininni beittu sér að því að Valdimar Inga Gunnarssyni var bolað frá sem framkvæmdarstjóra Strandbúnaðar vegna hans  gagnrýni á spillingu. Á það að vera refsivert að gagnrýna spillingu?

Í Fiskeldisfréttum er nú fjallað um vafasöm vinnubrögð við undirbúning og gerð laga um fiskeldi og rekstur Strandbúnaðar á árunum 2017-2020.

Sækja Hér

Ársskýrsla Samfélagsverkefnis gegn spillingu

Í Fiskeldisfréttum hefur alltaf verið fjöldi mynda af fiskeldi en að þessu sinni eru fyrst og fremst myndir af hrafni. Margir þekkja glysgirni hans, svo  ekki sé talað um stríðnina og hversu þjófóttur hann er. Hrafninn er mikil persóna og býr yfir mannlegri hegðun. Sumir frumkvöðlar í íslensku fiskeldi geta eflaust speglað sig í hegðun hrafnsins.  Í gamalli þjóðtrú segir að Guð launi fyrir hrafninn, geri þeim gott sem gauka einhverju að honum. Þrátt fyrir að vinnubrögð frumkvöðla standist ekki skoðun má ekki geyma því að framganga þeirra hefur ýmislegt jákvætt leitt af sér – Að vísu er greinin mjög umdeild og ekki allir sammála að uppbygging laxeldis í sjókvíum sé jákvæð.  

Skýrslan HÉR 

Read more… →

Stefnumótun í fiskeldi: Umræðan, tillögur og staðan

Stefnumótun í fiskeldi

 Hér er um að ræða úttekt á vinnu og tillögum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Um er að ræða tímabilið desember 2016 til ágúst 2017 en til að geta metið stöðu einstakra málaflokka í tillögum stefnumótunarhópsins er horft lengra fram í tímann allt til þessa árs. Skýrslan er hluti þeirra vinnu að kortleggja vinnubrögð sem viðgengust við undirbúning og gerð laga um fiskeldi til að fá betri heildarmynd sem  verður dregin saman í  bókinni  Lög um fiskeldi – ,,Þetta hefur eftirmála“ og einnig stuðst við skrifum á greinum í fjölmiðlum á næsta ári. Jafnframt er vonast til að þessi rannsóknarskýrsla nýtist Ríkisendurskoðun við úttekt á stjórnsýslu fiskeldis og Matvælaráðuneytinu við stefnumótun í fiskeldi eða hvað ber að varast í þeirri vinnu. Starfshópi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi var gefinn kostur á að gera athugasemdir við skýrsluna sem þau nýttu sér ekki. Í minni vinnu er áhersla lögð á að vinna faglega og er það miður ef staðreyndarvillur er að finna í skýrslunni.

Ná í skýrsluna

Read more… →