Skýrsla Ríkisendurskoðunar og beiðni sem ekki var svarað

Hér er að finna skýrslu Ríkisendurskoðunar ,,Sjókvíaeldi – Lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit (fylgiskjal 1). Ríkisendurskoðun er þakkað fyrir ágæta skýrslu sem mun nýtast mínu ,,Samfélagsverkefni gegn spillingu“. Það er margt áhugavert í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þau vinnubrögð sem hafa viðgengist á undanförnum árum innan fiskeldis. Þegar vinna Ríkisendurskoðunar hófst bentu lögfræðingar undirrituðum á að stofnunin myndi ekki skoða eða kafa djúpt í spillingarmálin sem hafa einkennt þessa atvinnugrein. Á því verður tekið í mínu samfélagsverkefni.

Beiðni sem ekki var svarað
Þann 20. maí 2019 sendi undirritaður tölvupóst til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og allir alþingismenn fengu afrit (fylgiskjal 2). Þar var óskað eftir að gerð væri opinbera rannsókn vegna alvarlegra annmarka á vinnubrögðum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Þessari beiðni var svarað með því að svara engu. Nokkrum sinnum var beiðnin ítrekuð við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í tölvupóstum og auglýst í fjölmiðlum án árangurs.

Rannsóknin
Það sem ekki var orðið við beiðni um opinbera rannsókn ákvað undirritaður að framkvæma rannsóknina sjálfur og hefur hún staðið yfir í allnokkurn tíma. Vinna undirritaðs í þessu verkefni fer að vera mjög umfangsmikil og verður því árlega gefin út árskýrsla og þá fyrstu er að finna í fylgiskjali 3. Ársskýrslan gefur gott yfirlit yfir það sem búið er að gera og tengingar inn á allt efni sem hefur verið birt fram að þessu.