Ný dagsetning
Strandbúnaður 2020 verður haldinn mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október.
Sami ráðstefnustaður
Engin breyting hefur verið gerð á ráðstefnustað og verður Strandbúnaður á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá
Það var búið að birta dagskránna á vef ráðstefnunnar vegna ráðstefnu sem átti að halda seinnihluta þessarar viku. Eflaust má gera ráð fyrir einhverjum breytingum á dagskránni og verður það þá kynnt seinna.
All posts by Valdimar Ingi Gunnarsson
Ársskýrsla Dýralæknis fisksjúkdóma
Árið 2019 var á heildina litið farsælt á flestum sviðum íslensks fiskeldis og framleiðsla til slátrunar umfram bjartsýnar væntingar. Ytri aðstæður voru hagstæðar, ekki síst er varðar markaðsmál og náttúruöfl. Eitt versta fárviðri í áratugi fór óblíðum höndum um mest allt land aðra vikuna í desember, en bæði eldismenn og mannvirki voru vel viðbún þannig að hvergi hlaust tjón af. Slíkur veðurhamur getur þó haft óbein áhrif á kvíafisk og jafnvel leitt til tímabundinna affalla sem erfitt getur reynst að verjast. …………. Lesa meira
Sjókvíaeldi laxfiska – Stefnumótunarskýrslan, fiskeldisfrumvarpið og vinnubrögðin
Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra frá 2018 um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu er vísað til OECD þar sem stjórnvöld eru hvött til að veita hagsmunaaðilum jafnan og sanngjarnan aðgang að opinberri stefnumótun til að tryggja heilindi í ákvörðunartöku og að almannahagsmunir séu hafðir að leiðarljósi. Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út þann 23. ágúst 2017 setti leikreglurnar sem voru skjalfestar í lögum um fiskeldi árið 2019 og lagði grunn að fjárhaglegum ávinningi stjórnarformanna stærstu laxeldisfyrirtækjanna sem voru fulltrúar Landssambands fiskeldisstöðva í hópnum. Lesa meira
Sjókvíaeldi laxfiska – Stefnumótunarhópurinn og hagsmunagæsla
Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra frá 2018 um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu er bent á að hagsmunavarsla getur leitt til óeðlilegra áhrifa einstakra aðila, veitt þeim ávinning á kostnað annarra í sömu stöðu og skekkt samkeppni. Stjórnarformenn Arnarlax og Fiskeldi Austfjarða komu að undirbúningi og gerð laga um fiskeldi þar sem þeir voru leiðandi við hönnun á leikreglum, skjalfest í lögum, sjálfum sér og sínum fyrirtækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra. …. Lesa meira
Að tryggja sínum fyrirtækjum fjárhagslegan ávinning
Ákveðnir hagsmunaaðilar komu að undirbúningi og gerð laga um fiskeldi með það að markmiði að tryggja sínum fyrirtækjum fjárhagslegan ávinning. Málið snýst ekki um að nýta sér tækifærin, heldur að vera leiðandi við hönnun á leikreglum, skjalfest í lögum, sjálfum sér og sínum fyrirtækjum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra. Lesa meira
Dagskrá Strandbúnaðar 2020
Á ráðstefnunni verða 11 málstofur, tíu kynntar núna og ein í næsta mánuði. Flutt verða um 60 erindi á Strandbúnaði 2020. Eins og á síðasta ári eru tvær málstofur með keyptum erindum þar sem styrktaraðilar Strandbúnaðar 2020 verða með áhugavert fræðandi efni tengt þeirra búnaði og þjónustu.
Flest erindi á Strandbúnaði 2020 eru á íslensku. Í nokkrum málstofum verður einnig að finna erindi á ensku eða um 25% erinda.