Hinn 20. ágúst 2023 var tilkynnt um gat á netpoka í sjókví hjá Arctic Sea Farm í Patreksfirði dótturfélaga Arctic Fish. Talið var að tæplega 3.500 eldislaxar hafi sloppið. Í lok ágúst var búið að veiða eldislax í ám á Vestfjörðum, Vesturlandi og Norðvesturlandi. Um miðjan september hafði verið tilkynnt um 100 eldislaxa í veiðiám, október um 300 og í desember voru þeir orðnir rúmlega 400 talsins. Engar ár með laxi eru í Patreksfirði og dreifðu eldislaxarnir sér því í laxveiðiár yfir stórt svæði.
Ummæli og viðbrögð
Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish gerði strax lítið úr slysasleppingunni sem vakti hörð viðbrögð andstæðinga sjókvíeldis. Þegar umfang og alvara málsins kom í ljós steig forstjóri félagsins fram og harmaði atburðinn og bauðst til að greiða kostnað við að fjarlægja eldislaxinn úr veiðiám. Málið vakti mikla athygli og umtal í íslenskum fjölmiðlum, það var mótmælt á Austurvelli, á Alþingi Íslendinga var lagt til að banna sjókvíaeldi á laxi og málið fékk töluverða umfjöllun erlendis.
Skýrsluna má finna HÉR