Málið varðar vinnubrögðin við undirbúning og gerða laga um fiskeldi þar sem fjársterkir hagsmunaaðilar mótuðu leikreglurnar sjálfum sér og sínum til fjárhagslegs ávinnings. Hinn 17. október 2019 var birt auglýsing í Morgunblaðinu þar sem kallað var eftir opinberri úttekt á þeim vinnubrögðum sem voru viðhöfð við undirbúning og gerð laga um fiskeldi. Samtals voru birtar fjórar auglýsingar án þess að það skilaði árangri. Áður hafði m.a. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþings verið sent bréf þar sem vakin var athygli nefndarinnar á vinnubrögðum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi, en lög um fiskeldi sem samþykkt voru árið 2019 byggist að mestu á tillögum starfshópsins.
All posts by Valdimar Ingi Gunnarsson
Rýniskýrslan og vöktun laxastofna
Sviðstjóri fiskeldissvið Hafrannsóknastofnunar svarar í hinn 10. september greinum mínu sem hafa birst í Bændablaðinu þar sem áhættumat erfðablöndunar hefur verið gagnrýnt. Í grein sviðstjórans er í meginatriðum farið inn á að skýra a) áhættumat sem stjórnatæki, b) vöktunaraðferðir og c) ritrýni áhættumatsins. Í þessar grein verða teknir fyrir tveir seinni liðirnir.
Áhættumat erfðablöndunar í nýju föt keisarans
Allir þekkja ævintýrið um nýju fötin keisarans eftir H. C. Andersen. Þegar keisarinn gekk út á götu í nýju fötunum hrópaði lýðurinn hvað nýju fötin keisarans eru glæsileg og sitja vel. Enginn vildi láta á því bera, að hann sæi ekkert. En lítið barn hrópaði upp yfir sig: „En keisarinn er ekki í neinum fötum”. Málið varðar Áhættumat erfðablöndunar sem fyrst var gefið út af Hafrannsóknastofnun árið 2017, starfshópur um stefnumótun í fiskeldi lagði til að notað væri sem stjórnsýslutæki og Alþingi staðfesti í lögum um fiskeldi árið 2019.
Áhættumat erfðablöndunar sem íslenska leiðin
Nú hafa verið birtar sjö greinar um áhættumat erfðablöndunar í Bændablaðinu og bent á ýmsa vankanta áhættumatsins og er stutta samantekt að finna í töflu 1. Áhættumat erfðablöndunar var fyrst gefið út af Hafrannsóknastofnun árið 2017 og staðfest í lögum um fiskeldi árið 2019 og varð grunnur að úthlutun framleiðsluheimilda á frjóum laxi til fyrirtækja í meirihlutaeigu erlenda aðila.
Áhættumat erfðablöndunar og viðbrögð við slysasleppingum
Áhættumat erfðablöndunar gefið út af Hafrannsóknastofnun árið 2017 felur í sér að horfa, gera ekki neitt og mæla síðan tjónið. Það gengur út á að leggja mat á hvort atburður hafi átt sér stað og grípa þá til aðgerða. Einu viðbrögðin eftir að ljóst er að eldislax hefur sloppið er að veiða við sjókvíar. Í Noregi þar sem búið er að glíma við áratuga langa erfðablöndun í villtum laxastofnum er áherslan á að koma í veg fyrir að eldislax nái að hrygna í veiðivötnum með að fjarlægja fiskinn. Gróflega má skipta veiðum á strokulaxi í fjögur þrep:
- Veiðar við eldiskvíar.
- Veiðar í sjó utan eldissvæða.
- Hindra uppgöngu ósasvæðum.
- Fjarlægja eldislax úr veiðivatni um haustið fyrir hrygningu.
Áhættumat erfðablöndunar og vöktun laxastofna
Vöktun er mikilvæg til að fylgjast með því hvort eldislax sé að ganga upp í veiðiár og er grunnforsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir. Hafrannsóknastofnun hefur ekkert minnst á haustvöktun og lætur þannig hjá líða að upplýsa stjórnvöld um virkustu vöktunaraðferðina sem er forsendan fyrir því að hægt verði að meta hlutfall eldislaxa í veiðivötnum hér á landi á hagkvæman og skilvirkan hátt. Haustvöktun gengur út á að kafað er í veiðiár að hausti og taldir villtir laxar og eldislaxar.