Strandbúnaður, hvað er nú það? Í þessum Fiskeldisfréttum verður m.a. sagt frá Strandbúnaði.
Strandbúnaður, ráðstefna fyrir fiskeldi, skeldýra- og þörungarækt. Hlutverk vettvangsins er að stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um strandbúnað og styðja þannig við menntun, rannsóknir, þróun og stefnumótun. Fyrsta verkefni Strandbúnaðar er að halda ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík dagana 13. – 14. mars 2017.
Strandbúnaður er samheiti yfir atvinnugreinar sem tengjast nýtingu land- og/eða sjávargæða í og við strandlengju landsins, hvort sem um ræktun eða eldi er að ræða.
Efnisyfirlit Fiskeldisfrétta að þessu sinni:
Lesa meira
All posts by Valdimar Ingi Gunnarsson
Sjávarútvegsráðstefnan-Erindi og myndir
Nú er hægt að sækja flest öll erindi sem haldin voru á Sjávarútvegsráðstefnunni á vef ráðstefnunnar undir liðnum Dagskrá 2016. Jafnframt er hægt að sækja myndir á vef ráðstefnunnar.
Lesa meira
Ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar
Ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar er komið út. Í ráðstefnuheftinu er að finna dagskrá, lýsingu á málstofum og erindum, framúrstefnuhugmyndum og margt fleira. Athugið að ráðstefnuheftið er 12 MB og getur því tekið allnokkurn tíma að niðurhala því.
Fiskeldi á Sjávarútvegsráðstefnunni
Laxeldi hefur verið töluvert í umræðunni hér á landi og mikill áhugi er á greininni sem stendur frammi fyrir krefjandi áskorunum. Af þessum ástæðum hefur verið ákveðið að hafa tvær veglegar málstofur tileinkaðar fiskeldinu á Sjávarútvegsráðstefnunni og bjóða upp á fjölbreytt efni, sett fram af færustu mönnum á sínu sviði. Markmiðið með þessum tveimur málstofum um fiskeldi er að skýra núverandi stöðu greinarinnar og leggja grunn að stefnumótun hennar hér á landi með því að sækja í reynslu, þekkingu og yfirsýn erlendra fagaðila og byggja áframhaldandi umræðu á staðreyndum. Lesa meira
Fiskeldisfréttir
Fiskeldi hefur sennilega aldrei verið jafn mikið í fjölmiðlum eins og tvo síðustu mánuði. Umræðan hefur verið lituð af neikvæðri umfjöllun um fiskeldi, en þó með allnokkrum jákvæðum fréttum. Efnistök Fiskeldisfrétta taka mið af þessari fjölmiðlaumfjöllun ásamt ýmsu öðru efni. Að þessu sinni er efnistök Fiskeldisfrétta:
Vaki fær nýja eigendur
Vaki fiskeldiskerfi hf. er 30 ára gamalt hátæknifyrirtæki sem nú hefur fengið nýja eigendur. Bandaríska fyrirtækið Pentair Aquatic Eco Systems Ltd. hefur fest kaup á öllu hlutafé í Vaka og styrkir þar með stöðu sína á þeim mörkuðum þar sem Vaki hefur verið leiðandi afl um árabil. Stefnt er að fullnustu samninganna í nóvember næstkomandi. Lesa meira