Þann 28. maí 2019 var send beiðni til Umboðsmann Alþingis og óskað eftir opinberri úttekt vegna þeirra alvarlegu annmarka á vinnubrögðum starfshóps um stefnumótun í fiskeldi. Þann 7. júní var beiðninni svarað en þó er virtist án þess að framgangur næðist í málinu. Þann 10. desember 2019 var send ítrekun til Umboðsmanns Alþingis og m.a. bent á að fjölmargir tölvupóstar hafi verið sendir til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og auglýst eftir viðbrögðum án þess að svör hafi borist. Þann 18. júní 2021 var aftur ítrekað við Umboðsmann Alþingis og nú með kvörtun um að Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis svarar ekki beiðnum mínum um opinbera rannsókn. Framvinda hefur nú verið í málinu þannig að það hefur fengið númerið 11183/2021 í málaskrá embættisins. Í svari umboðsmanns kemur fram að honum bresti lagaskilyrði til að taka á þessu máli.
All posts by Valdimar Ingi Gunnarsson
Lög um fiskeldi – Arnarlax ,,kassaði“ inn tugum milljarða með lobbýisma og spilltri stjórnsýslu
Nú hefur höfundur skrifaðar ellefu greinar í Morgunblaðið um spillingu við undirbúning og gerð laga um fiskeldi þar sem gerendur hafa haft að leiðarljósi mikinn fjárhagslegan ávinning. Þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð nefnast að ,,fanga ríkisvaldið” (e. state capture) og það sorglega er að þeim virðist hafa verið viðhaldið eftir að lögin voru samþykkt frá Alþingi sumarið 2019.
Greinin í Morgunblaðinu 28.06.2021
Þáttur N4 um fiskeldi, nr. 2
Samfélagsleg áhrif fiskeldis – Vestfirðir 2. þáttur
Þættir N4 um fiskeldi
FISKELDI – SAMFÉLAGSLEG ÁHRIF – VESTFIRÐIR – Fiskeldi hefur aukist mikið á Vestfjörðum a undanförnum árum, með tilheyrandi atvinnuuppbyggingu. Íbúum á sunnanverðum Vestfjörðum fjölgar. Í þessari nýju þáttaröð á N4 er fjallað um starfsemi fiskeldisfyrirtækjanna á Vestfjörðum og samfélagsleg áhrf þeirra. N4 gerir tvo þætti um fiskeldi á Vestfjörðum og einnig tvo þætti um fiskeldi á Austurlandi.
Lög um fiskeldi – Stefnumótun stjórnvalda um fiskeldi varð að stefnumótun sérhagsmunaaðila – Og nokkrir ,,kössuðu“ inn
Þann 6. október 2016 birtist frétt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis þar sem m.a. var boðuð vinna við stefnumótun á fiskeldi. ,,Sett verður af stað vinna við stefnumótun fyrir allt fiskeldi á Íslandi. Í þeirri vinnu verður m.a. fjallað um umhverfisþætti, stjórnsýslu, gjaldtöku, útgáfu rekstrarleyfa, menntunarmál ásamt efnahags- og samfélagslegum þáttum“. Jafnframt var bent á að ,,mikilvægt er að skilyrði og umgjörð um greinina séu eins og best verður á kosið og í sem mestri sátt bæði við samfélag og umhverfi“. Var það gert? Morgunblaðið 19. Maí 20121
MÆLABORÐ FISKELDISINS OPNAÐ
Með Mælaborði fiskeldis eru allar helstu upplýsingar um stöðu fiskeldis í sjó og á landi orðnar aðgengilegar á einum stað til hagsbóta fyrir almenning og stjórnvöld. Þetta tímamótaskref að stjórnvöld eigi frumkvæði að birtingu þessara upplýsinga er í samræmi við þá stefnumörkun við breytingu á lögum um fiskeldi 2019 að auka gagnsæi í starfsemi greinarinnar. Þessi birting tryggir um leið heildstæðari yfirsýn yfir stöðu og þróun greinarinnar, sem er mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi.