Category Archives: Ráðstefnur

Fiskeldi á Sjávarútvegsráðstefnunni

Laxeldi hefur verið töluvert í umræðunni hér á landi og mikill áhugi er á greininni sem stendur frammi fyrir krefjandi áskorunum. Af þessum ástæðum hefur verið ákveðið að hafa tvær veglegar málstofur tileinkaðar fiskeldinu á Sjávarútvegsráðstefnunni og bjóða upp á fjölbreytt efni, sett  fram af færustu mönnum á sínu sviði. Markmiðið með þessum tveimur málstofum um fiskeldi er að skýra núverandi stöðu greinarinnar og leggja grunn að stefnumótun hennar hér á landi með því að sækja í reynslu, þekkingu og yfirsýn erlendra fagaðila og byggja áframhaldandi umræðu á staðreyndum. Lesa meira

Vaki í 30 ár

Postur Vaki30Á þessu ári eru 30 ár liðin frá stofnun Vaka og mun þeim tímamótum vera fagnað nokkrum sinnum yfir árið. Þann 3. júní sl. komu saman margir viðskiptavinir,   starfsmenn, samstarfsaðilar, umboðsmenn og aðrir velunnara Vaka til að fagna þessum tímamótum.

Fagráðstefna var haldin í Hörpu, þar sem hátt í 100 manns mættu og hlustuðu á 7 fyrirlesara, frá 5 löndum flytja erindi um stöðu og framtíð fiskeldisins í heiminum.

Lesa meira