Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar rannsóknastjóra fiskeldis hjá stofnuninni í Bændablaðinu hinn 9. mars kemur m.a. eftirfarandi fram: ,,Valdimar ýjar jafnframt að því að annarleg sjónarmið og spilling hafi ráðið för við úthlutun eldisheimilda“. Það er athyglisvert að rannsóknastjóri fiskeldis hjá Hafrannsóknastofnun notar orðið spilling en það hefur ekki verið notað í mínum greinum eða rannsóknaskýrslum þegar verið er að fjalla um aðkomu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Málið varðar undirbúning og gerð laga um fiskeldi sem samþykkt var á árinu 2019 á Alþingi Íslendinga þar sem leiðin var vörðuð til mikils fjárhagslegs ávinnings erlendra fjárfesta og íslenskra fulltrúa þeirra. Í því ferli hefur áhættumat erfðablöndunar leikið eitt af lykilhlutverkum.
Pdf skjal af greininni sem birtist í Bændablaðinu