Í fylgiskjali hér að neðan er Ársskýrsla samfélagsverkefnis gegn spillingu 2025. Skýrslan veitir heildstætt yfirlit yfir verkefni ársins.
Í lok árs 2025 var birt á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um lagareldi. Frumvarpið felur í sér allnokkrar breytingar frá frumvarpi ársins 2024, sem ekki náði fram að ganga þegar það var til umfjöllunar á vorþingi.
Margar jákvæðar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu, ekki síst hvað varðar umhverfismál, og ber að þakka það.
Stærsta verkefni næstu mánaða verður að skila umsögnum um lagareldisfrumvarpið, ásamt athugasemdum, ábendingum og tillögum um það sem betur má fara. Fulltrúar erlendra fjárfesta létu mjög til sín taka þegar lög um fiskeldi voru samþykkt árið 2019 og í kjölfarið var unnið markvisst að framgangi þeirra mála með fjárhagslegan ávinning að leiðarljósi. Í frumvarpsdrögum eru ákvæði sem virðast bera merki aðkomu fulltrúa erlendra fjárfesta.
Í umsögn verkefnisins mun vega þyngst að rýna þau ákvæði frumvarpsins sem tryggja erlendum fjárfestum áframhaldandi fjárhagslegan ávinning, og meta áhrif þeirra með hliðsjón af almannahagsmunum og umhverfisvernd.