Í skýrslu starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi frá árinu 2017 var lagt til ,,að ekki verði settar sérstakar takmarkanir á erlent eignarhald í íslensku fiskeldi. Slíkar reglur myndu draga úr fjárfestingum erlendra aðila í fiskeldi hér á landi og þannig skapa óvissu um framþróun fiskeldis“. Á þessum tíma voru laxeldisfyrirtæki með erlenda eignaraðild þá þegar komin í meirihlutaeigu útlendinga. Í rökstuðninginum var meðal annar bent á alþjóðlegar skuldbindingar að ekki væri heimilt að takmarka ,,fjárfestingar erlendra aðila á EES svæðinu“. En er það þannig?
Pdf skjal af greininni sem birtist í Morgunblaðinu
Pages: 1 2