Category Archives: Áhættumat erfðablöndunar

Áhættumatið og aðför að íslenskum hagsmunum

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar rannsóknastjóra fiskeldis hjá stofnuninni í Bændablaðinu hinn 9. mars kemur m.a. eftirfarandi fram ,,Lokun fyrir laxeldi í innri hluta Ísafjarðardjúps túlkar Valdimar sem beina aðför að hagsmunum fyrirtækja í íslenskri meirihlutaeigu“.  Margir veiðiréttaeigendur og umhverfasinnar hafa lagt áherslu á að  Ísafjarðardjúp verði lokað fyrir laxeldi í sjókvíum og reyndar að eldi á norskættuðum laxi verið bannað í öllum fjörðum landsins. Skoðum fyrst fyrri ákvæði um heimildir til eldis á frjóum eldislaxi í íslenskum fjörðum og förum síðan yfir þær svæðisbundnu takmarkanir sem settar hafa verið í áhættumati erfðablöndunar.

Read more… →

Áhættumatið og annarleg sjónarmið

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar rannsóknastjóra fiskeldis hjá stofnuninni í Bændablaðinu hinn 9. mars kemur m.a. eftirfarandi fram: ,,Valdimar ýjar jafnframt að því að annarleg sjónarmið og spilling hafi ráðið för við úthlutun eldisheimilda“.   Það er athyglisvert að rannsóknastjóri fiskeldis hjá Hafrannsóknastofnun notar orðið spilling en það hefur ekki verið notað í mínum greinum eða rannsóknaskýrslum þegar verið er að fjalla um aðkomu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Málið varðar undirbúning og gerð laga um fiskeldi sem samþykkt var á árinu 2019 á Alþingi Íslendinga þar sem leiðin var vörðuð til mikils fjárhagslegs ávinnings erlendra fjárfesta og íslenskra fulltrúa þeirra.  Í því ferli hefur áhættumat erfðablöndunar leikið eitt af lykilhlutverkum.   

Pdf skjal af greininni sem birtist í Bændablaðinu

Read more… →

Áhættumatið og litlu veiðiárnar

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og grein Ragnars Jóhannssonar rannsóknastjóra fiskeldis hjá stofnuninni í Bændablaðinu hinn 9. mars kemur m.a. eftirfarandi fram: ,,Valdimar fullyrðir jafnframt að áhættumatið hafi lítið sem ekkert með náttúruvernd að gera og að litlum veiðiám sé fórnað til þess eins að geta veitt erlendum aðilum eldisheimildir“.

Pdf skjal af greininni í Bændablaðinu

Read more… →

Lögfesta erfðablöndunar á laxi

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar rannsóknastjóra fiskeldis hjá stofnuninni í Bændablaðinu hinn 9. mars kemur m.a. eftirfarandi fram:  ,,Hann klykkir út með því að vitna í umsögn þess eðlis að með lögfestingu áhættumatsins hafi verið gefin lagaheimild til þess að erfðablanda íslenskan lax“.  Hér er vitnað til greinar höfundar sem birtist í Bændablaðinu hinn 9. febrúar. Höfundur birti einnig grein í Bændablaðinu hinn 04.06.2020 undir heitinu ,,Það er búið að lögfesta heimild til erfðablöndunar á villtum íslenskum laxastofnum“. En skoðum nú málið betur, er þessi Valdimar Ingi Gunnarsson einn um þessa skoðun?

Greinin í Bændablaðinu í pdf formi

Read more… →

Áhættumat erfðablöndunar – Hvað næst?

Uppbygging laxeldis í sjókvíum við Íslandi hefur verið leitt af íslenskum fulltrúum erlendra fjárfesta og skilað þeim aðilum miklum fjárhagslegum ávinningi. Leikreglurnar voru mótaðar í skýrslu starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi frá árinu 2017 þar sem áhættumat erfðablöndunar leikur lykilhlutverk við úthlutun þeirrar auðlindar sem fólgin er í leyfum til eldis á laxi í sjókvíum hér við land. Áhættumat erfðablöndunar er úthlutunarkerfi sem gagnast aðallega laxeldisfyrirtækjum í meirihlutaeigu erlendra aðila og hefur lítið sem ekkert með náttúruvernd að gera.  Náttúruvernd áhættumats erfðablöndunar er best lýst með umsögn lögfræðings og formanns stangveiðifélags við fiskeldisfrumvarpið sem endanlega var samþykkt á Alþingi Íslendinga á árinu 2019: ,,Það er raunar með nokkrum ólíkindum að veitt sé lagaheimild fyrir því að erfðablanda megi villtan íslenskan lax“.  

Jafnframt var þess gætt af íslenskum fulltrúum erlendra fjárfesta í stefnumótunarhópnum að ekki væru settar hindranir sem kæmu í veg fyrir að mögulegt væri að fara með laxeldisfyrirtækin á erlendan hlutabréfamarkað og ná þannig mikilli hækkun í hafi á verðmætum eldisleyfa.

PDF skjal af greininni sem birtist í Bændablaðinu

Read more… →

Áhættumat erfðablöndunar í umhverfismati áætlana

Undirritaður hefur sent inn umsögn við áhættumati erfðablöndunar í umhverfismati áætlana.  

Vegna tímaskorts tókst ekki að klára umsögn í því formi sem stefnt var að.   Í því sambandi er þó bent á að fyrirséð er að undirritaður mun veita áhættumati erfðablöndunar andmæli á næstu árum og þá taka mun betur fyrir ýmsa þætti er varða áhættumatið.  

Áhættumat erfðablöndunar leggur til  umfangsmiklar framleiðsluheimildir  og  aðferðafræði sem  fela  í  sér  brot  á  ýmsum  lögum  og  í  raun  gefur  norskættuðum strokulöxum frjálsan aðgang að veiðiám á eldissvæðum til að hrygna með íslenskum  villtum löxum.  Það sorglega er að áhættumat erfðablöndunar er að valda skaða á  íslenskum laxastofnum á eldissvæðum og hefur lítið sem ekkert með umhverfisvernd að gera. Það er raunar með nokkrum ólíkindum að veitt sé lagaheimild á Alþingi Íslendinga fyrir því að erfðablanda megi villtan íslenskan lax með innleiðingu áhættumats erfðablöndunar.

Hægt er að sækja greinagerðina HÉR