Skýrslan fjallar um stefnumótun stjórnvalda og þróun lagareldisfrumvarpa 2023–2026, einkum um laxeldi í sjókvíum. Stefnan frá 2023 er borin saman við frumvarpsútgáfur tímabilsins, nefndarálit og breytingartillögur. Metnaðarfullur undirbúningur, greiningar og samráð nægðu ekki til að skapa samstöðu um umhverfisvernd, rekstrarskilyrði og skiptingu verðmæta.
Stutt um skýrsluna
Frumvarpið getur styrkt stöðu núverandi rekstrarleyfishafa. Upphafsúthlutun laxahluta byggist á fyrirliggjandi eldisheimildum án útboðs eða sérstaks kaupverðs. Sala, leiga og veðsetning geta aukið fjárhagslegt notagildi þeirra. Útboð óráðstafaðra laxahluta yrði bundið við handhafa smitvarnasvæða og tryggir því ekki sjálfkrafa aðgang nýrra fyrirtækja eða virka samkeppni. Við útfærslu upphafsúthlutunar þarf að meta sérstaklega stöðu nýttra og ónýttra eldisheimilda og tryggja að úthlutunin samræmist þeirri réttindaskipan sem endanlega verður valin.
Vikið var frá stefnunni í veigamiklum atriðum: laxahlutakerfið bættist við, tengsl umhverfisárangurs og framleiðsluheimilda veiktust og fallið var frá lögfestingu friðunarsvæða og lokafresti endurskipulagningar.
Meginniðurstaðan er að frumvarpið sé enn ófullmótað. Ákvörðunum um réttindi, framleiðslumörk, friðun og viðbrögð við frávikum er að hluta vísað til reglugerða án nægilega skýrra lagaviðmiða. Það getur skapað ágreining og tafið nauðsynlegar aðgerðir.
Endurskoða ætti frumvarpið í heild. Forgangsverkefnin eru bindandi umhverfismörk, skýr viðbrögð við frávikum, afstaða til laxahlutakerfisins fyrir úthlutun, fagleg afmörkun smitvarnasvæða og skýr kostnaðarskipting og réttarvernd. Fyrir gildistöku þurfa drög að lykilreglugerðum að liggja fyrir og eftirlitsstofnanir að hafa nægt fjármagn og getu.
Kaflar 1–4 fjalla um undirbúning og samanburð stefnunnar og frumvarpanna, kaflar 5–6 um álitaefni og erlendar fyrirmyndir og kafli 7 um úrbætur. Í 25 viðaukum eru stuðningsgögn og ítarlegri röksemdir.