Kaldvík – Leiðin til fjárhagslegs ávinnings

Kynnt er ítarleg skýrsla sem ber heitið „Kaldvík – Leiðin til fjárhagslegs ávinnings“. Titillinn kann að virðast skjóta skökku við í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu félagsins. Gengið hefur verulega á eigið fé Kaldvíkur og óefnislegar eignir, einkum eldisleyfi, nema nú 82% af eigin fé. Samkvæmt ársskýrslu félagsins námu bókfærð verðmæti eldisleyfa um 26 milljörðum króna í árslok 2025.

Sækja PDF skjal skýrslunnar

Stutt um þróunina

Fiskeldi Austfjarða var stofnað árið 2012 og byggði stöðu sína á öflun eldisheimilda og fjármögnun. Eftir að MNH Holding keypti hlut í félaginu árið 2015 færðist eignarhaldið smám saman til norskra fjárfesta. Samanlagður norskur eignarhlutur var 62% árið 2017.

Stjórnarformaður Fiskeldis Austfjarða tók þátt í stefnumótunarhópi stjórnvalda á árunum 2016–2017. Þar var meðal annars unnið að tillögum um úthlutun eldissvæða og leyfisferli. Lög nr. 101/2019 heimiluðu áframhaldandi afgreiðslu eldri umsókna, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Það varðveitti stöðu Fiskeldis Austfjarða þegar úthlutunarkerfinu var breytt.

Leyfisstaðan studdi við fjármögnun félagsins og skráningu norska móðurfélagsins Ice Fish Farm á markað í Osló árið 2020. Slátrun jókst verulega fram til ársins 2025, en stöðug arðsemi náðist ekki. Tap félagsins árin 2024 og 2025 og á fyrri helmingi ársins 2026 samtals rúmir 16 milljarðar króna.

Þegar leyfin í Seyðisfirði voru veitt í september 2026 nam leyfisgrunnur félagsins 53.800 tonnum.

Eignarhlutur íslenskra eigenda hefur farið vaxandi og er nú kominn yfir 40%. Þar vega þyngst hlutir Ísfélagsins og Krosseyjar (Skinneyjar-Þinganess).