Laxar fiskeldi – Berufirði

Postur - Berufjordur

 

Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum allt að 5.000 tonna framleiðslu á laxi í Berufirði.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. júlí 2016 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Til staðar eru tvö rekstrarleyfi í Berufirði. Þorskeldi ehf. er með 99 tonna leyfi til þorskeldis og 100 tonna leyfi til regnbogasilungseldi. Fiskeldi Austfjarða er með 6.000 tonna leyfi til laxeldis og 2.000 tonn til regnbogasilungseldi.