Laxar fiskeldi ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum allt að 4.000 tonna framleiðslu á laxi í Fáskrúðsfirði.
Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28. júlí 2016 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Til staðar eru tvö rekstrarleyfi í Fáskrúðsfirði. Þorskeldi ehf. er með 200 tonna leyfi til þorskeldis og Fiskeldi Austfjarða (AB 317 ehf) með 3.000 tonna leyfi til regnbogasilungseldi.