Áhættumat erfðablöndunar, úttektin og gagnrýnin

Hinn 9. febrúar 2023 birti höfundur í Bændablaðinu greinina ,,Áhættumat erfðablöndunar – hvað næst?“. Greininni var svarað af sérfræðingi Hafrannsóknastofnunar og það vakti síðan sérstaka athygli að málinu var fylgt eftir með fréttatilkynningu á vef stofnunarinnar. Í fylgiskjali 1 með þessum tölvupósti er að finna annan hluta þar sem málið er rakið frá byrjun ársins 2023.

Gagnrýnin og staða mála

Áhættumatið hefur verið gagnrýnt af undirrituðum og fjölmörgum öðrum aðilum.  Áhættumat Hafrannsóknastofnunar er best lýst með umsögn lögfræðings og formanns stangveiðifélags: ,,Það er raunar með nokkrum ólíkindum að veitt sé lagaheimild fyrir því að erfðablanda megi villtan íslenskan lax.“ Hér er vísað til laga sem samþykkt voru á Alþingi á árinu 2019. Erfðablöndunin var síðan staðfest í skýrslu Hafrannsóknastofnunar sem gefin var út á árinu 2023.

Úttekt ICES

Nýlega var haldinn vinnufundur um áhættumat erfðablöndunar og er afrakstur þeirra vinnu að finna í ICES skýrslum, fylgiskjöl 2 og 3.  Niðurstöðu þessara vinnu má e.t.v. draga fram í ummælum framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga „Hafrannsóknastofnun og íslenska ríkið hafa fullkomlega brugðist skyldum sínum til að vernda villta íslenska laxastofna“.  Því miður hefur framkvæmdastjórinn rétt fyrir sér og er tekið undir hans niðurstöðu. Þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð á síðustu árum eru öllum til tjóns, engum til gagns, nema mögulega erlendum fjárfestum.

Hafrannsóknastofnun til varnar

Hafrannsóknastofnun til varnar verður að taka fram að ákveðnir sérfræðingar, jafnvel meirihlutinn, hafa viljað vinna fagleg og heiðarlega og hafa vernd íslenska laxastofna að leiðarljósi. Þeir sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar sem hafa mótað stefnuna og leitt vinnuna eru smá saman að leiðast af rangri braut inn á rétt braut. Það virðist margt jákvætt að gerast í málinu og er þar vísað til fylgiskjala 2 og 3.