Valdimar Ingi Gunnarsson er sjávarútvegsfræðingur (M.Sc.Fisheries) að mennt og helstu verkefni sem hann hefur unnið við er tengjast lagareldi frá því hann útskrifaðist frá Háskólanum í Tromsø eru:
- Umhverfismat, umsóknarferli og fleira fyrir Hraðfrystihúsið Gunnvöru (nú Háafell) (2011- ).
- Framkvæmdastjóri Strandbúnaðar (2016 –2020).
- Þorskeldiskvótaverkefnið (2002-2014) fyrir Hafrannsóknastofnun.
- Kræklingaverkefnið (2000-2005) fyrir Veiðimálastofnun.
- Lög, reglugerðir fyrir fiskeldi ásamt skýrslugerð fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið (2004-2015).
- Verkefni er tengjst slysasleppingum og forvörnum fyrir Veiðimálastjóra (nú Fiskistofa).
- Verkefnisstjórnun og yfirlestur fiskeldisumsókna fyrir AVS rannsóknasjóð í sjávarútvegi (2003-2015).
- Verkefnisstjórnun á verkefninu Aukin samkeppnishæfni bleikjueldis í landeldisstöðvum (2011-2013).
- Framkvæmdastjóri Sjávarútvegsráðstefnunnar (2010 – ).
- Stefnumótunarverkefni, fundir og ráðstefnur fyrir Landssamband fiskeldisstöðva.
- Stundakennari við Háskólann á Akureyri og kenndi fiskeldisgreinar og var leiðbeinandi í lokaverkefnum (2001-2003).
- Stofnar Sjávarútvegsþjónustuna 1999 og hefur unnið sem verktaki við verkefnisstjórnun og ráðgjöf í fjölda verkefna.
- Umsjón með fiskeldisbraut Bændaskólans á Hólum, ásamt námskeiðahaldi fyrir starfsmenn fiskeldisstöðva og námsgagnagerð (1989-1991).
- Starfaði sem sérfræðingur í fiskeldi hjá Veiðimálastofnun. Ráðgjöf og upplýsingaöflun fyrir hið opinbera og atvinnugreinin (1987-1988).
- Starfaði við strandeldisstöð Íslandslax hf. (1986).
- Helstu ritverk Valdimars Inga Gunnarssonar